K-dog

26.03.2008 13:26:07 / kristin

Check it!!!!!

Ákvað að prófa að blogga á nýrri síðu :) Endilega kíkið á hana:

www.kristinoskwium.bloggar.is

Yours: K-dog

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.02.2008 16:14:48 / kristin

Afmælisbarn

Elsku Sesselja Ósk okkar!!

Innilega til hamingju með daginn elsku prinsessan okkar. Ótrúlegt að það séu komin 2 ÁR frá því að þú komst í heiminn :).

Þínir foreldrar og systkin.

Kærar þakkir allir fyrir stelpuna okkar og allar fallegu kveðjurnar.

Yours: K-dog


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.01.2008 23:56:34 / kristin

Heill haugur.....

Af nýjum myndum á síðunum hjá krökkunum mínum!!!!! Myndir frá fæðingadeildinni,síðustu bumbumyndirnar, áramótin ofl. 2 ný blogg á síðunni hennar Aðalbjargar. Munið eftir gestabókinni gott fólk og athugasemdum í vefdagbók ;).

Annars er allt gott að frétta. Sú minnsta dafnar alveg rosalega vel og er svo vær og góð að við bara trúum því ekki. Ég vil þakka öllum sem hafa komið í heimsókn alveg kærlega fyrir dömuna, og auðvitað heimsóknina.

Yours: K-dog

 

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

13.01.2008 20:16:58 / kristin

Myndir

Nokkrar myndir komnar inn á barnaland. Von er svo á fleirum á næstu dögum :D.

Yours: K-dog


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.01.2008 20:02:40 / kristin

Litla prinsessan er fædd!!!!!!!

Þá er litla prinsessan okkar loksins komin til okkar!! Hún var sko að flýta sér ekkert smá mikið og kom innan við 2 tímum eftir að við komum upp á fæðingardeild :o. Ég vaknaði upp um morguninn og fann einhvern voða skrítinn verk klukkan korter í átta. Svo fann ég tvo svoleiðis í viðbót og klukkan hálf níu bað ég Stefán að kíkja heim því ég hefði fengið voða furðulega verki, en Stefán ákvað að halda áfram að vinna þangað til ég myndi eiga. Hann kom þá heim, en ég var ekkert með neina reglulega verki, hélt jafnvel að þetta væri bara e-h allt annað en ég væri að fara af stað. Svo um 10 leytið þá hringir Stefán upp á fæðingardeild og okkur er sagt að koma bara endilega þegar við viljum til þess að láta kíkja á mig, en þá var ég búin að vera með 3-5 mín á milli í kannski 40mín. Verkirnir voru samt ekkert orðnir neitt óbærilegir. Við tókum okkur svo bara tíma í að klæða Sissu litlu og skutla henni til Helga og Heiðu og svo fórum við upp á spítala, en þá voru verkirnir aftur orðnir óreglulegir og ég hélt að ég yrði jafnvel bara send heim aftur. Svo þegar við komum fékk ég einn verk sem var frekar vondur og þá var mér bara vísað inn á fæðingarstofu, en klukkan var 11 þarna. Klukkan hálf tólf er ég síðan skoðuð í fyrsta sinn, en ég var nú reyndar bara skoðuð tvisvar, og var þá komin með 7 í útvíkkun. Þetta gekk allavega það vel að ég gat ekki fengið neina deyfingu því prinsessan mín skaust út á 7mín :). Ég missti sama sem ekkert blóð og rifnaði EKKI NEITT :D:D!!! Hún var síðan mæld og var hún 3495gr og 50cm, eða FULLKOMIN! Við þrjú fórum síðan í hreiðrið og létum fara vel um okkur þar. Við fengum tvær ljósur því önnur var að koma úr 2 ára barnseignarfríi. Þær voru þær yndislegustu sem ég hef kynnst. Sú stutta er einnig komin með nafn :). Hún heitir AÐALBJÖRG ÓSK STEFÁNSDÓTTIR. Aðalbjörg er í höfuðið á systur langömmu minnar sem var bara alltaf eins og amma mín. Hún giftist aldrei né eignaðist börn þar sem unnusti hennar dó fyrir aldur fram. Svo heitir mín yndislega móðir líka Unnur AÐALBJÖRG Hauksdóttir ;).

Ég er að leita að snúrunni til þess að geta sett inn myndir af prinsessunni okkar. Það eru allir velkomnir en við viljum hins vegar minna á að RS-vírusinn er í gangi og ef þið eruð með börn í skóla eða leikskóla þá helst ekki taka þau með hingað því hún litla gæti annars bara þurft að fara í öndunarvél ef hún smitast. Hringið bara endilega í okkur ef ykkur langar að kíkja :).

Yours: K-dog, núna orðin þriggja barna móðir :).


» 7 hafa sagt sína skoðun

05.01.2008 18:46:34 / kristin

Annáll 2007

Jæja elskurnar mínar allar, er ekki komin tími á smá upprifjun á árinu 2007 :)?? Fyrst vil ég þakka öllum kærlega fyrir fallegar afmæliskveðjur í gær :D. En það gerðist margt á árinu 2007 og það er ekkert sa furðulegt að það sé búið :S. Eins og Stefán sagði um daginn:" Árið sem við giftum okkur á er bara búið!!" En hér er smá annáll.

  • Í janúar varð ég 24 ára og gerði mér þá allt í einu grein fyrir því að ég yrði orðin FRÚ eftir 5 mánuði. Ég byrjaði að skipuleggja daginn, enda ekki seinna vænna ;)
  • Í Febrúar varð yndislega dóttir mín EINS árs. Ég veiktist hins vegar alveg hræðilega og var mjöööög lengi að jafna mig :(. Við gátum því ekki haldið upp á afmælið hennar á afmælisadaginn eða helgina eftir hann, en gerðum það sem betur fer að lokum í febrúar.
  • Mars var skemmtilegur mánuður :). Í honum var ég m.a GÆSUÐ :D:D. Það var alveg stórkostlegur dagur og stelpurnar mínar stóðu sig eins og hetjur í að skipuleggja hann. Ekki spillti svo fyrir að í endann á kvöldinu hittum við einhverja strákar sem voru frá Bretlandi og voru í viðskiptaferð hérna á Íslandi með fyrirtækinu sínu. Þeir komust að því að verið var að gæsa mig og FYRIRTÆKIÐ þeirra borgaði drykkina fyrir okkur ALLT KVÖLDIÐ :lol:!! Geggjað alveg hreint ;). Þetta var eitt skemmtilegasta "fyllerí" sem ég hef upplifað. Kristín Ólöf hélt síðan sitt fyrsta heimboð fyrir okkur stúlkur þar sem hún og Addi voru nýflutt saman í Garðabæinn :)
  • Í apríl skrapp Stefán með vinnunni sinni út til Manchester á árshátíð. Við ákváðum að ég myndi bara vera heima því okkur fannst það svo dýrt ef ég færi með líka:$. Stefán er náttúrulega bara yndislegastur því hann kom heim með BRÚÐARSKÓNA mína :D. Þeir sem voru í brúðkaupinu okkar geta vitnað um það að þeir voru sko GEGGJAÐIR!!! Það er kannski ekki skrítið að það litla krílið okkar hafi komið undir i þessum mánuði eftir að Stefán kom heim hehe:lol:.... Harpa systir varð 23 ára í þessum mánuði og Stefán minn varð 27 ára, og þau urðu það náttúrulega á sama deginum ;). Hrönn og Hlynur, vinafólk okkar Stefáns gengur í það heilaga og var maturinn í veislunni þeirra bara sá BESTI sem ég hef smakkað!! Það gerði það að verkum að mér fór að hlakka ennþá meira til þess að gifta mig :).Fleira gerðist í þessum mánuði, sumt sorglegt og sumt kom öllum á óvart. Það var mikið að gera hjá mér í sambandi við brúðkaupið og ef Kolla mín hefði ekki verið til staðar vet ég ekki hvað ég hefði gert. Ég fór einnig í prufuförðun til hennar Þóreyjar minnar og í prufugreiðslu til hennar Kristínar Egils í þessum mánuði.
  • Í maí varð allt crazy!!! Hluti af stelpunum mínum voru alveg frábærar og komu til mín til þess að hjálpa mér að pakka inn gestagjöfum og brjóta servíettur fyrir brúðkaupið okkar. Kolla mín var mér auðvitað eins og aukahandleggur og á tímabili var eins og VIÐ værum að fara að gifta okkur hehe:lol:. Snædís mín var ekkert smá dugleg við að skipuleggja allt í sambandi við veisluna, enda ekki hægt að fá betri veislustjóra en hana!! Í þessum mánuði komumst við líka að því að á leiðinni væri annars gleðigjafi :o. Við urðum auðvitað pínu hissa, en tókum því bara ofsalega vel,enda ekki annað hægt ;). Ég fór í lokamátun og komu mamma,pabbi,Harpa,og Kollan mín með mér. Allir sem vettlingi gátu valdið voru til í að hjálpa okkur með stóra daginn og er ég ykkur öllum svo innilega þakklát fyrir allt. Í maí varð svo elskulegi pabbi minn fimmtugur :) og var svo haldin veisla upp í bústað. Það var alveg frábær dagur í alla staði.
  • Í júní rann svo stóri dagurinn okkar upp!! Ég hef aldrei á ævinni upplifað jafn yndislegan dag í alla staði. Kollan mín og Þórey mín voru hjá mér allan daginn og það var allt svo rólegt og yndislegt hérna heima meðan við vorum að taka okkur til. Mamma og Margrét sys komu líka hingað og svo Harpa sys. Sesseljan mín var síðan auðvitað hérna hjá okkur líka. Þetta var sem sé stelpuveldi hérna megin ;). Ég mun aldrei gleyma því mómenti þegar hurðinn á kirkjunni opnaðist og ég sá Stefán minn standa við altarið og alla vini mína og ættingja saman komna. LANG LANG LAAAAANG BESTI dagur ævinnar minnar og Stefáns. Seinna í mánuðinum komumst við svo að því að ég hafði víst verið komin 8 vikur þegar við giftum okkur. Að vísu föttuðu flestir að ég væri ófrísk vegna þess að ég var ekki að drekka neitt í brúðkaupinu, skálaði meira að segja bara í sprite með grenatine útí ;).
  • Í Júlí varð Stefán að fara út á land að vinna :( . Ekkert alveg rosalega gaman að vera nýgift og þurfa svo að fara að vinna útá landi í einhvern tíma. Það versta var að á meðan hann var útá landi áttum við tíma í hnakkaþykktarmælingu hjá krílinu. Ég ætlaði að breyta tímanum en sem betur fer gerði ég það ekki því ég var komin mun lengra en við héldum. Ef ég hefði breytt tímanum hefði ekki verið hægt að gera þessa mælingu:|. Harpa sys fékk bara að koma með mér í staðinn fyrir Stefán og henni fannst það auðvitað alveg frábært :). Í júlí gifti líka Dögg æskuvinkona sig.
  • Í ágúst flutti Harpa sys til Keflavíkur með stelpurnar sínar og byrjaði í ljósmyndunarnámi. Kolla mín skellti sér á þjóðhátíð og svo þaðan til Spánar. Sonur okkar hjóna byrjaði síðan í 2.bekk :o. Ég varð alltaf duglegri og duglegri við það að hitta yndislegu stelpurnar mínar í saumó og í þessum mánuði var farið út að borða á DOMO þar sem ég fékk alveg fullkomna nautasteik. Ég fékk líka nýtt nafn,þ.e.a.s þá tók ég upp ættarnafnið hans pabba, og heiti því nú Kristín Ósk WIUM Hjartardóttir. Við fórum upp í sumarbústað, flottasta bústað sem ég hef held ég komið í, því amma Sigrún var að halda upp á afmælið sitt. Það var alveg hreint frábært. Svo í endann á mánuðinum fórum við í 20.vikna sónarinn og fengum að vita að von væri á nýrri prinsessu :D.
  • Í September skelltum við hjónin okkur í langþráða brúðkaupsferð. Við fengum svo mikinn pening í brúðargjöf að við urðum í raun bara að borga c.a 30 þús sjálf ;). Við skelltum okkur til Spánar og þar gistum við í næst hæðstu byggingu í evrópu. Við fengum meira að segja herbergi upp á 42.hæð því við vorum í brúðkaupsferð  ;). Því miður endaði ferðin ekki vel, en ég fékk alveg massa matareitrun þarna úti og þurfti að fara með sjúkrabíl inn á spítala. Sem betur fer var allt í lagi með prinsessuna okkar. Börnin okkar dvöldu í góðu yfirlæti hjá ömmu sinni, afa og Margréti meðan við vorum úti og söknuðu okkar sko ekki neitt :D.
  • Í Október urðu svaka breytingar hjá vinahópnum. Kolla flutti til Tálknafjarðar til þess að vinna,Hlínzan okkar kom með stórkostlegar fréttir en hún og Manni eru að fjölga mannkyninu,Björk sem ætlaði aldrei að flytja að heiman flutti að heiman með Árna sínum og ekki nóg með það heldur flutti hún niðrí 101 RVK!! Snædís orkubolti fór í svaka þakframkvæmdir, enda ekki til í orðabók á þeim bæ að SLAPPA AF hehe:lol:.
  • Í Nóvember varð "litli" strákurinn minn 7 ára gamall. Ég og Stefán áttum hálfs árs brúðkaupsafmæli. Litla prinsessan í bumbunni stækkaði bara og stækkaði. Sesselja Ósk varð ennþá sjálfstæðari og heimtaði bókstaflega að fá að gera ALLT sjálf:lol:. Það urðu mikil veikindi á þessum bæ í Nóv líka.
  • Svo rann upp Desember og hann var nú bara alveg ágætur. Náðum að klára allt fyrir jólin og áttum yndisleg jól hérna heima og buðum mömmu,pabba og Margréti til okkar. Um áramótin vorum við síðan hjá Eyrúnu og Gumma vinafólki ma&pa. Allt var bara alveg eins og það átti að vera og kasólétta konan varð ekkert léttari fyrir áramótin ;).

En jæja þetta var annállinn minn. Ég vil bara segja í lokin hvað ég er þakklát fyrir það að á þessu ári eyddi ég miklum tíma með elskulegum vinkonum mínum og ef það er hægt þá þykir mér alltaf bara vænna og vænna um þær. Hef sko komist að því að svona vini er ekki að finna á hverju strái. Þá tók ég sérstaklega vel eftir því hversu frábærar það eru í brúðkaupinu mínu, en þær voru sko alveg frábærar það :D.

Jæja ég kveð þá árið 2007 með pínu söknuði, þar sem mér á alltaf eftir að þykja vænt um tiltekin dag á því ári ;). Ég vona bara að árin sem koma skulu eigi eftir að vera jafn frábær og 2007 :D.

Yours: K-dog

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.01.2008 00:28:11 / kristin

Ég á víst afmæli í dag......

Í dag er frúin víst orðin 25 ÁRA!!! Hrikalega líður tíminn hratt eitthvað 8|. Í gær var ég að leika mér í barbí með vinkonum mínum en í dag allt í einu orðin gift næstum þriggja barna móðir :lol:. Allavega þá kemur annáll fyrir árið 2007 fljótlega, en núna verð ég að fara að lúlla mér enda orðin alveg hálf fimmtug ;).

Góða nótt elskurnar.

Yours: K-dog birthdaygirl...


» 5 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 01:13:44 / kristin

BERGKRISTALL

Verslunin Bergkristall býður upp á EKTA rússneskan kristal sem unnið hefur til margra verðlauna. Einnig erum við með fallegt postulín, sem er rússneskt líka, til sölu. Endilega kíkið við og gerið góð kaup fyrir jólin, erum með allt frá litlum kristalsvösum upp í ljósakrónur. Erum einnig með falleg matarstell og falleg bollastell. Margir verðflokkar!!
Hlökkum til að sjá ykkur.
Bergkristall
Faxafeni 9
Reykjavík
Sími:5515080

www.bergkristall.is

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.11.2007 14:19:59 / kristin

Tíminn líður....

Kannski tími á smá færslu frá mér hmmm......

Hér af Eyrarholtinu er allt ágætt að frétta, nei ég lýg því reyndar því krakkarnir eru búnir að vera alveg rosalega veikir núna síðustu og þar síðustu viku :S. En sem betur fer eru þau öll að koma til, verst að ég er orðin e-h hálf slöpp en ég harka það af mér ;). Sérstaklega þar sem un KOLLA mín er LOKSINS komin í bæinn, stoppar reyndar stutt en ég get sko ekki beðið eftir því að hitta hana :D. Saumaklúbburinn er að fara að hittast núna í kvöld heima hjá Kus og ætla Kristín og Björk að elda fyrir okkur gellur, nammi namm..... Það verður því tilbreyting hjá minni að komast aðeins í burtu héðan úr veikindabælinu á Holtinu :lol:.

Annars er allt ágætt að frétta af nýjasta meðliminum. Hún bara stækkar og stækkar og bumban auðvitað með hehe...Ég er alveg ágætlega heilsuhraust þannig séð. Varð pínu blóð lítil á tímabili en tók þá bara járn í c.a viku og ég lagaðist öll ;).Annars er ég bara búin að vera með fyrirvaraverki upp á síðkastið, er reyndar búin að vera með samdrætti alla meðgönguna en það er alveg eðlilegt þar sem þetta er þriðja barnið mitt:lol:. Mér finnst alveg fáránlegt að hugsa til þess að hún sé bara aaaaalveg að koma í heiminn, bara c.a 7 vikur eftir. Annars eru þau hin tvö BÆÐI fædd fyrir tímann, þannig að það gæti jafn vel verið styttri bið í krílið:o. Eins og hún Kolla mín orðaði svo skemmtilega: "Farðu nú að átta þig á því að þetta barn ER að fara í koma í heiminn!!" híhí...Já Kolla mín ég skal reyna ;).

En ég held að ég hafi nú ekkert merkilegra að segja núna. Hann Davíð minn varð 7 ára núna 12.nóv, mikið svakalega líður tíminn hratt :o áður en ég veit af verð ég að ferma hann!! Hann fékk alveg heila hrúgu af peningum í afmælisgjöf og erum við á leiðinni með þá í bankann til þess að setja inn á framtíðarreikning fyrir kappann ;). Sissa litla fær reyndar líka svona reikning nema það er kannski aaaaaaðeins minna inn á honum, Davíð fékk nefnilega næstum 30ÞÚS í AFMÆLISGJÖF :o!!! Hann bauð öllum krökkunum í bekknum sínum líka í afmælið sitt, en við héldum það í litlu Björk sem er náttúrulega ALGJÖR SNILLD. Svo komu auðvitað frænkur hans og vinir líka þangað. Hún Snædís mín kom með honum Degi sínum og ég get svo svarið fyrir það að hún BJARGAÐI deginum!!!! Takk elsku bestasta Snædís mín!!! Hér með ertu ráðin í ÖLL barnaafmæli hjá mér næstu árin híhí :).

En jæja nú ætla ég að fara með eiginmanninum mínum aðeins niðrí bæ til þess að reyna að finna e-h sæmilegt til þess að vera í....þ.e.a.s einhverju sem kemst VEL yfir þessa risabumbu sem er framan á mér.

Yours: K-dog

P.S Þann 2.Des erum við Stefán búin að vera HJÓN í HÁLFT ÁR!! Jahá tíminn líður svo sannarlega hratt....


» 5 hafa sagt sína skoðun

12.11.2007 15:41:59 / kristin

Afmæli!!!

Elsku strákurinn okkar er orðinn 7 ÁRA gamall :O!!!

Innilega til hamingju með afmælið elsku stóri strákurinn okkar. Þínir foreldrar og litla systir :).


» 1 hafa sagt sína skoðun

05.10.2007 12:42:47 / kristin

Komin tími til

Jæja kannski komin tími á update ;)

Margt búið að gerast síðan síðast:

  • Fórum til Benidorm og áttum alveg yndislega brúðkaupsferð, fyrir utan smá matareitrun var allt alveg fullkomið :) Höfum aldrei verið jafn hamingjusöm eins og við erum í dag (I know girlz BARF hehe). Fengum míní svítu á 42.hæð í næsthæðstu byggingu í Evrópu, en í notkun undir gesti eru 43 hæðir en húsið er samtals 46 hæðir. Það þurfti allavega mikið að mana sjálfan sig upp í að fara út á svalir hehe ;) en það kom á endanum.
  • Lítil stelpa á leiðinni hjá okkur hjónum, samt er auðvitað alltaf best að hafa vaðið fyrir neðan sig og vera nú ekki ALVEG viss því sónarinn er auðvitað ekki 100%. Meðgangan gengur alveg eins og í sögu, er alltaf svöng (eins og vinkonur mínar geta borði vitni um híhí;) hélt sko ekki að mér myndi líða svona vel á neinni meðgöngu. Finnst í raun pínu leiðinlegt að þetta sé annaðhvort síðasta eða næst síðasta meðgangan mín :(. En eins og ég segi þá líður mér bara mjööööög vel og allt í sómanum ennþá. Fékk ekki einu sinni bjúg í flugvélinni eða útá Spáni, hef reyndar aldrei fengið bjúg þannig að ég er víst voða heppin með það ;)
  • Er alveg í skýjunum þessa dagana vegna einnar vinkonu minnar sem virðist ætla að tútna út eins og ég :D LOKSINS er einhver ólétt af mínum vinkonum á sama tíma og ÉG :) Ég og Snædís náðum reyndar nokkrum mánuðum saman hérna um árið ;) Nú er verið að reyna að stefna fleirum skvísum í að vera með í ´08 grúppunni, okkur er að takast að snúa einni í viðbót hehe....
  • Miklar breytingar eru hjá okkur vinahópnum. Ein flutt út á land,önnur í 101,STÓR breyting hjá annari eftir áramót,ein orðin "fósturmamma",ein á leið úr landi í smá tíma, ein í skemmtilegum hugleiðingum, ein í svaka framkvæmdum á húsinu sínu og svo ein sem er að fara að stækka við fjölskylduna vonandi eftir áramótin, er víst búin að LOFA því að það verði EFTIR áramót ;)
  • Davíð Máni orðinn ekkert smá stór, enda kominn í 2.bekk!! SHIT hvað tíminn líður hratt. Sesselja Ósk er alltaf jafn mikil prinsessa. Sækir sér iðulega föt í fataskápinn sinn og heimtar að fara í ÞAU og ekkert annað. Vill endalaust vera í baði og strýkur bumbuna hennar mömmu sinnar reglulega og kyssir :) litla krúttið. Davíð Máni ætlar sko að láta litlu systur í bumbunni þekkja röddina sína og talar og talar við litlu ófæddu systur sína og syngur lög fyrir hana, hann er svo mikið yndi þetta barn :D.

Jæja er búin að segja meir en nóg held ég í bili...... Er á leiðinni út að borða með skvísunum mínum í kveld og get ekki BEÐIÐ :D MMMMMMMM........MATUR hehe:haha:.

Yours: K-dog

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.09.2007 12:34:25 / kristin

Myndir

MYNDIR ÚR BRÚÐKAUPSFERÐ KOMNAR INN Á SÍÐURNAR HJÁ KRÖKKUNUM!!! LÁTIÐ MIG VITA EF ÞIÐ ÞURFIÐ LYKILORÐIÐ :D

YOURS: K-DOG


» 4 hafa sagt sína skoðun

08.09.2007 21:34:40 / kristin

Smá fréttir frá Spáni!!

Allt frábaert ad frétta af okkur hjónum. Erum bara hérna í FRÁAERU yfirlaeti á Spáni, eda á Benedorm/La Cala. Hér er búid ad vera yfir 30stiga hiti alla daga og langt fram eftir kvoldi. Hótelid er alveg hreint MAGNAD!!! Vid fengum eins og litla svítu tví vid erum í brúdkaupsferdinni okkar. Vid erum sem sé í naest staedstu byggingu í Evrópu:o en hótelid okkar heitir Gran Hotel Bali. Hótelid er alls 46 haedir,en adeins 43 eru notadar fyrir gesti. Á 43 haed eru bara svítur. Vid erum á 42 haed :lol:. Vid sem sé fengum tetta klikkada útsýnis herbergi af tví ad vid vorum ad gifta okkur :). Tegar vid komum tá var buid ad kaela kampavínsfloskur,2, fyrir okkur og tar voru einnig 2 glos, ekkert smá saett af teim. Annars er bara búid ad vera alveg yndislegt ad komast adeins í burtu frá hversdagsleikanum. Tó er mjoooog erfitt ad vera frá krokkunum, mikid erfidara en vid héldum :|. Vid soknum teirra alveg óhemju mikid, en vid reynum adláta tad ekki trufla okkur of mikid.

Annar vildi ég bara hafa tetta stutt núna.

Ádur en ég fer tá var ég víst búin ad gleyma tví ad láta vita ad vid Stefán fórum í sónarinn um daginn og allt gekk eins og í sogu :D. Á leidinni er onnur prinsessa og vid erum svooooo hamingjusom :).

En jaeja nú verd ég ad fara. Er ad fara á STRIPSHOW á eftir hehe :),svaka flottir gaurar ;).

Yours: K-dog.


» 4 hafa sagt sína skoðun

30.08.2007 15:58:47 / kristin

Lífið er yndislegt

Allavega á þessum bæ í augnablikinu ;). Bara 6 DAGAR í brúðkaupsferð okkar hjóna og við getum varla beðið :D. Trúi því bara ekki að ég sé að fara að spóka mig á sólarströnd, láta dekra við mig og borða viðbjóslega góðan mat sem kostar varla neitt neitt, og allt þetta bara innan við viku :o!!! Það verður reyndar erfiðast að kveðja krakkana okkar :S en við verðum nú ekki það lengi í burtu. Sissa litla hefur samt bara einu sinni sofið að heiman, það var nóttina eftir brúðkaupið okkar. Annars er hún nú alltaf mjög stillt, engin svaka skvetta eins og þið sem hafið hitt hana vitið ;), þannig að þetta ætti ekki að vera mikið mál. Svo er hún líka svo mikið háð bróður sínum og hann verður auðvitað líka hjá ömmu sinni og afa. Úff ég er ekki búin að gera NEITT í samb. við þessa ferð, annað en að borga hana ;). Á eftir að pakka fyrir mig og krakkana og svo á ég auðvitað líka eftir að "leiðbeina" manninum mínum það sem hann á að taka með sér hehe ;).

Svo erum við fjölskyldan á leiðinni upp í sumarbústað þar sem hún amma mín, konan hans afa, er að halda upp á 70 ára afmælið sitt og leigði bústaði fyrir allt liðið :). Við hjónin verðum í bústað með mömmu og pabba, en pabbi kemur víst ekki fyrr en á laugardaginn því hann þarf að vinna :S. Þetta verður bara rosalega kósý og okkur hlakkar mikið til.

Svo á morgunn er líka langþráði sónarinn :D:D. Stefán komst auðvitað ekki í hnakkaþykktarsónarinn þannig að honum hlakkar svo til að fá að sjá litla krílið sitt.

Annars segja allir á þessum bæ bara allt fínt. Sesselja Ósk stækkar bara og stækkar, enda að verða stóra systir ;) og Davíð  Máni er bara á fullu í skólanum, enda kominn í 2.bekk :o!!

Annars virðist fólk gera mikið af því að fullorðnast þessa dagana og fara burt frá mér :$. Harpa sys er náttúrulega flutt inn í Keflavík með stelpurnar sínar í alveg æðislega íbúð. Hún er náttúrlega að læra ljósmyndun, þó persónulega finnist mér hún sko bara geta kennt hana því hún er svo klár ;) Svo skrapp hún aðeins til Flórída að heimsækja ótrúlega sætan strák híhí ;) og auðvitað til þess að VERSLA!! Hún fór AUÐVITAÐ með óskalista frá systur sinni :D. Svo virðist bestasta vinkona mín ætla að yfirgefa mig líka, allavega í einhvern tíma :(. Veit ég á sko eftir að sakna hennar sárt, en þetta gefur mér bara meiri ástæðu til þess að heimsækja staðinn sem ég ólst upp á ;). Kolla mín ég LOFA að koma að kíkja á þig elskan !!!

Svo erum við á leiðinni í grill í kvöld, en hann Einar frændi er 25 ára í dag :D. Innilega til hamingju elsku Einar. Hann er einnig að yfirgefa mig og það í 10 MÁNUÐI!!! Jebb, kappinn er á leiðinni til USA að gera fullt fullt af góðverkum fyrir fátæka fólkið, og taki aðrir hann sér til fyrirmyndar!!!

En jæja ætla að fara að klára að borða. Blogg aftur eftir sónarinn.

Yours: K-dog.


» 6 hafa sagt sína skoðun

08.08.2007 14:30:56 / kristin

Nýtt nafn

Jæja kæru vinir og lesendur!

Eins og titillinn segir til um þá er ég komin með nýtt nafn....án djóks. Við systur fórum LOKSINS og létum breyta nöfnunum okkar og tókum upp ættarnafnið hans pabba :) Ég heiti sem sé núna Kristín Ósk Wium Hjartardóttir og hann Davíð minn heitir líka núna Davíð Máni Wium,kappinn vildi auðvitað heita í höfuðið á honum afa sínum ;). Svo verður Sesselja Ósk bara að fá að ráða þessu þegar hún er orðin eldri.

Annars er ekkert neitt alveg svakalega merkilegt að frétta. Fór út að borða með elsku stelpunum mínum á laugardaginn og það var alveg FRÁBÆRT. Við fórum á DOMO og maturinn þar var bara geðsjúkur skal ég segja ykkur. Svo var alveg tipp topp þjónusta þarna líka. Þetta var alveg ofsalega skemmtilegt kvöld og það var ekkert smá gaman að hitta hana Svövu sem kom með okkur skvísunum, hún mætti nú líka alveg fara að drífa sig í að hitta okkur oftar ;).

Eins og ég sagði þá er ekkert annað nýtt að frétta. Kolla mín bara stungin af til Spánar og kemur ekki heim fyrr en um miðjan mánuð og Harpa sys loksins að fá íbúðina sína afhenta, hlakka ekkert smá til þess að fá að sjá hana :D. Svo fer sonur minn bara aaaaalveg að byrja í 2.bekk alveg fáranlegt hvað tíminn líður hratt. Sesselja allt í einu orðin 1 og hálfs árs og bráðum að verða stórasystir :S og ég er næstum því hálfnuð á meðgöngunni...... úff tíminn bara flýgur áfram.

Jæja ætla að fara að gera e-h af viti hérna heima. Skelli með einni bumbumynd sem eiginmaðurinn minn tók af mér í gær, var þá komin akkurat 17 vikur.

Yours: K-dog


» 5 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 8
Dagsetning
23. febrúar 2012
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 26 mars
Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1198 dögum
Ég fer til NEW YORK með elsku bestustu vinkonum í heimi
Myndasöfn